Elsku danir...Berglind Siguršardottir

Já þeir eru yndi...það er sko allt búið að vera lamað í gær og í dag...LOKAÐ VEGNA VEÐURS....já það nebbla snjóar sko....hahahaha....þeir eru æði...

En það er ekkert smá kósý að fá bara frí og geta horft út um gluggan...svona einu sinni....dagur tvö...þá er þetta orðið þreytt...og maður er orðin verulega pirraður á sínu eigin barni...því miður!!!!

En langaði bara aðeins að kommmenta á þessa snilld...þar sem ég sit hérna glaðvakandi snemma morguns og enginn búin að sæna sig inn á msn....

......ég bara bíð!

ĶBŚŠ!!!!!!!!!!!!!Berglind Siguršardottir

Jæja, við erum loksins komnar með íbúð....og ekki seinna vænna....eigum að losa þessa 1.mars....

en já...íbúðin er sko 2 hæðir í littlu húsi, með eigin garði, alveg við ströndina, 1mín í skólann, BAÐKAR, ARIN, og svaka svaka kósý....soldið listamannaleg...sona soldið öðruvísi, og nett sjabbí....á góðan hátt:)....svo er einhver strákur sem leigir eitt herbergi á jarðhæðinni, annas á ég húsi út af fyrir mig...

...já þetta er enginn smá léttir og nú vantar bara leikskólapláss og þá er allt gengið upp....

STEINUNN er flutt út...já takk fyrir, kemur til mín á morgun...og það sem meira er hún fær geggjað herbergi á leigu í geeeeeðveikri íbúð, í sömu götu og ég bý í:)....bara snilld....

annars erum við bara með hor og hósta og....og já....eruð þið að grínast með snjóinn úti...Danmörk er lömuð....enginn strætó gengur og snjór upp á hné og læri og við Klemma erum bara fastar heima og ekkert annað að gera en að búa til snjókarl úti....þetta er æði....

æj já....ætlaði bara að láta vita af okkur....annars er ég alltaf á myspace að hanga...kíkja þangað og fá sér eitt slíkt .....MYSPACE.COM/BEGGASIG

...hafið það annars gott gullin mín...það eru svo allir velkomnir í listamannahýbýli mitt frá og með miðjum apríl....verð á íslandi 29mars til 10 apríl....já og á spáni 9 mars til 19 mars...skildu skólaferðalag:)....

bless í bili....beggan


įst įst įssssssstttt....Berglind Siguršardottir

Ást Ást Ást Ást Ást....gleðilegan valentínusardag elskendur....og líka þið bitru!!!!

...já ég er búin að binda miklar vonir við þennan dag...og svo þarf ég að vera heima með veikt barn...þar fór það...

En helgin er að koma...og ég á frí alla helgina frá barnauppeldi, þvotti, þrifum og öðrum skildum...þökk sé pabbahelgum...hahahaha

Já og það er löööööööngu búið að ákveða tilgang helgarinnar...og það var ekki ég sem sá um það...nei elsku bekkjarfélagar og fleiri vinir eru búnir að bjóða sér í matarboð hjá mér á laugardaginn...þökk sé námslánum að ég er búin að kaupa mér partýdress...og svo verður skóladjamm á föstudaginn...með dýrslegu ývafi....

Já ég get ekki neitað að ég hlakki til að vera ung og ein...það er skrítið...en skemmtilegt...stundum:)

svo er elskunin hún Steinunn alveg að koma til danaveldis...hún hjálpar mér nú við það að ryðga ekki of mikið í skemmtanalífinu ef ég þekki hana rétt...kannski hún nái meira að segja að poppa upp fataskápinn minn...úffffff...eða kannski er það bara allsekki hægt!!!

Hafiði það nú gott elskurnar mínar...já og elskiði elskurnar mínar...það er mjög mikilvægt...alveg sama hvað það er....

P.S. vissuð þið að það var til dýrðlingur sem hét st. Begga uppi árið 600 og eitthvað...já takk...pant vera hún:)....bara brosa, þá gengur allt upp...!!!

myspaceBerglind Siguršardottir

hej....

sorry komin með myspace og er barasta alltaf þar...endilega kíkja MYSPACE.COM/BEGGASIG

...annars er ég að hanna gíraffahús:)...rosalega gaman...er að leita að íbúð og það fer að ganga vonandi...svo er Steinunn að koma núna í lok feb...mamma líka...svo fer ég til spánar með skólanum 9 mars, svo til íslands 29 mars...og svo...er klemman mín pínu lasin núna...og já....valentínusardagur eftir tvo daga...og ég á tvo miða á tónleika...en engann kærasta:)....hahahahah.....

já úff svona lítur það út í stuttu máli...en kíktu á myspace...og fáðu þér ef þú átt ekki....ef ég nenni svo að sinna þessu meir þá geri ég það....

hafðu það gott:)  

hę gęs....Berglind Siguršardottir

...jæja, þá er fyrstu önninni minni í arkitektaskólanum lokið!!!!

var að skila inn portfoliunni minni....og bara pjúffff!!!!

svo er bara verið að plana skólaferðalag til spánar í mars, svaka spennó, enginn pása, bara skoðunarferðir alla daga....ógislega girnilegt;)

...já og klemman verður heima á íslandi á meðan...meira að segja allan marsmánuð, svo að ég geti nú sinnt skólanum aðeins, nú já og steinunni minni!!!!

...ætla bara aðeins að fara að sæluvímast yfir að vera búin með önnina...hafið það gott og heyrumst....

bæjó, Beggan:)

ammili ammiliBerglind Siguršardottir

DUGLEG!

það eru margir sem fara til himna eða gerðu allavega góðverk í gær, takk fyrir!

annars átti ég alveg yndislegan afmælisdag sem byrjaði með kritik sem gekk framar öllum vonum og eftir það var haldinn risa fredagsbar í skólanum þar sem einhverra hluta vegna voru fullt af, að mér ókunnugum, karlmönnum að óska mér til hamingju með afmælið og bjóða mér út á dansgólfið!   og þannig leið nóttinn    gaman gaman!!!

já dagurinn í gær toppaði alveg seinustu 25 árin, takk aftur:)

ammili AMMILIBerglind Siguršardottir


AMMILI AMMILI AMMILI

ef tu vilt gera godverk i dag, sendu ta sms i sima:

        0045 31124024

texti: til hamingju med daginn Begga min (frjals texti)!

...gemmér, gemmér, gemmér....Berglind Siguršardottir

...tað er sko alveg að koma ammili...

.
....25.....


dimmalimm...

...annars hef ég sko ekki haft tíma til að hugsa um gjafalistann og svona, þið vitið elsku aðdáendurnir mínir...busy í skólanum...Náði að klára þetta blessaða brúarverkefni sem hefur haldið fyrir mér vöku undanfarnar 2 vikur....var til sex í morgun....frá níu morguninn áður...og á svo að kynna herlegheitin á morgun, stórhátíðardaginn 12.janúar...daginn sem Berglind Sigurðardóttir hin mikla leit dagsins ljós í þessa gráu veröld og lýsti upp hjörtu fólksins....ohhh dásamlegar minningar....

ég ætla nú ekki að tefja ykkur mikið lengur....iiiiii eins og þið séuð ekki löngu hætt að lesa ef ykkur finnst þetta svona leiðinlegt...kannski er enginn að lesa lengur....og ég bara að skrifa fyrir sjálfa mig....BERGLIND....snap out of it...

....bæ...ekkki gleyma mér á morgun....Svalur

śśśś....sjįšu mķna!!!!Berglind Siguršardottir


búinfatta þetta...flott...ikke?

.....en letur......??????begga og klemma

Sko....Rakel.....Berglind Siguršardottir

Ef þú vilt fá meira aksjón...(sem ég skil sossum mæta vel)....þá bara gjösso vel að kenna mér á þetta hérna.....og gemmér gemmér tíma!!!!! og myndavél...það er víst nauðsynlegt til þess að geta tekið myndir....men og men.....

hæ annars....fínn dagur...leiðinlegt veður....borðaði hádegismat með íslensku stelpnum og rosalega var gaman að hitta þær aftur...þær eru kjarninn í matarklúbbnum sem ég er að stofna.....og svo mega allir vera með....bara að það sé þema og rauðvín..!!!

....já svo af því að við höfðum það svo notalegt í fríinu um jólin að þá fannskt kennurunum obboslega sanngjarnt að skella bara á okkur þremur verkefnum í einu....já takkk...why not...so long nætursvefn næstu vikuna....og mér bara þarf að fara að finnast gaman í skólanum....eða allavega að búa til smá áhuga...þetta er samt ekkert svo leiðinlegt...það er bara ég sem er leiðinleg....oj neeeeiiii....bara kannski pínu stundum...mjööög sjaldan....bara smá....

uuuu....úbbs ég þarf aðeins að fara í smá sjálfskoðun....bæ í bili....